8.3.05

Nýr linkur hér til hliðar 

Já, Jói og tvíburarnir hans eru komnir í Syberspace.
Milli gjafa og sussa hefur Kata systir stokkið í tölvunna og skellt inn rosa flottum myndum af fjölskyldunni og nokkrum dagbókarfærslum. Allir þangað að kíkja.
Linkurinn hér til hliðar.

Ja, Joi (min svoger) og tvillingerne er kommet i Syberspace.
Mellem amning og susse har Kata (min søster) hoppet foran skærmen og sæt om hjemmeside med flotte billeder af familien og blogget lidt. Alle skulle kikke derind, men desværre er det kun in Islænsk.
Linken er her til siden.

6.3.05
Komin einhver bloggþreyta í sóltúnsfjölskylduna. Farin svolítið að finnast þetta eins og ókláruð peysa sem ég er að próna og gengur ekkert með, eða bútasaumsdúkurinn sem tók 2 og hálft ár að klára. Sé ekki fyrir endann á þessu bloggi. Klárast aldrei, því alltaf kemur nýr dagur!!! Veit ekki alveg hvar þetta endar, en mér líður eins og þetta sé alveg endalaust.
Búin að bora, og hamra í dag, umpotta bómum og setja nýja og ferska mold á þau í gær. Hjóla smá, slappa af mikið og nú er alveg að koma mánudagur.
Árshátið í vinnunni minni sl föstudagskvöld sem var alveg ljómandi, góður matur og skemmtilegt kompany. Maður biður nú ekki um meira.
Tengdó farinn og búinn að vera...... um helgina hjá okkur.

Soltunsfamilien er blogtræt. Føler lidt som en trøje man strikker men bliver aldrig færdig med ligemeget hvor meget jeg bliver ved, eller quiltdugen der tog 2 og halvt år at gøre færdig. Blogget ender aldrig. Der kommer altid nye dag!!! Ved ikke hvor dette ender men føler lidt i dag som det aldrig ender.
Har boret og hamret lidt i vægg i dag, sæt blomsterne i nye potte i går. Cyklet lidt, slappet meget af og nu er det snart mandag.
Fest hos hos min bos i fredags der var meget hyggelig, god mad og særlig sjovt selskab. Man beder ikke om mere.
Svigemor er gået men har været hos os over weekenden.

1.3.05
Svappkvöld í kvöld

Innl. útlit- Arsenal
Arsenal- Innl.útlit
Innl.útl- Arsenal
Arsenal- Innl.útl.
Innl.útl.- Arsenal
Arsenal- QESG
QESG- Arsenal
Arsenal- QESG
QESG- Arsenal
Arsenal- QESG
QESG- Arsenal
Arsenal- QESG
QESG- Arsenal

Stundum hvarflar að mér að gaman væri að eiga eitt par af sjónvörpum!!

Swapaften i aften (med fjernbetjeningen).

Innl. útlit- Arsenal
Arsenal- Innl.útlit
Innl.útl- Arsenal
Arsenal- Innl.útl.
Innl.útl.- Arsenal
Arsenal- QESG
QESG- Arsenal
Arsenal- QESG
QESG- Arsenal
Arsenal- QESG
QESG- Arsenal
Arsenal- QESG
QESG- Arsenal

Et par gange kunne det være skönt at have et par fjernsyn i hjemmet!!

27.2.05

nú er tímabært að fara að læsa útidyrahurðinni 

Helgin að baki, í rólegri kantinum til að byrja með allavegana. Skelltum okkur í göngutúr í Ellliðarárdalinn í gær. Veðrið dásamlegt og töldum við eyðieyjar í dalnum. Annars rólegheit. Viddi niðurlægði mig í Scrabble hvað eftir annað, svo nú verður eitthvað í að ég stingi uppá að grípa í það spil með honum.
En í dag sunnudag, fór að draga til tíðinda. Viddi uppgötvaði að búið var að bróta upp hurðina hjá gömlu konunni sem býr við hliðina á okkur. Hurðin stóð í hálfa gátt, og dyrakarmarnir allir í maski. Eins og í CSI eða LA law eða hvað það heitir, læddumst ég og Viddi inn og kölluðum...."Is anyone home!!!" enginn svaraði. Ekki leit út fyrir að neinu hefði verið stolið, en viddi tók upp möppu eina er lá á stólbaki og ég sagði "Ertu fráðér...þú mátt ekki snerta neitt!!" Ég gerði mér náttúrulega grein fyrir að ef fingraförin okkar sæjust útum allt, fengjum við etv. réttarstöðu GRUNAÐA!! Jæja, anyway, fundum símanúmer hjá dóttur gömlu konunnar og hringdum í hana. Hún vissi uppá hár að þar hefði bróðir hennar (sonur gömlu konunnar) alræmdur róni, dópari og ónytjungur verið á ferðinni. Hann hafði víst verið að hrella gömlu konuna undanfarna daga. Löggan kom, tók skýrslu, tók niður nafn mitt og kennitölu. Dóttir gömlu kom einnig og fékk mann til að laga hurðina svo hægt væri að loka henni. Og nú hefur verið tekin upp stefna að hafa útidyrnar læstar í íbúð 305, eftir að ég áttaði mig á að í síðustu viku, átti ég vingjarnlegt spjall (af minni hálfu) við þennan bróður þegar við urðum samferða upp lyftuna. Spjallið innihélt gaspur um kaffiboð! Já ég verð að hætta að vera svona glaðleg og vingjarnleg og hætta að grínast og gaspra við ókunnugt fólk!!!
Já, það er ekki á allt kosið þegar maður býr í Sódómunni Sóltúni.

Weekenden forbi. Rolig weekend i begyndelsen. Familien gik en tur i Ellidaardalur i går (lørdag). Vejret så skønt og vi talte vi ødeøerne i dalen. Ellers roligt. Viddi ydmygede mig et par gange da vi spillede Scrabble, så nu bliver det et stykke tid til jeg forslår at spille dette spil med ham igen.
Men i dag søndag, skete noget. Viddi opdagede at nogen havde brækket op udedøren hos den gamle kvinde der bor ved siden af os. Døren stod halv åben og dørekarmen var ødelagt. Lige som i crimiserierne i tv, i CSI eller LA law eller hvad det hedder, gik vi meget forsigtig ind og kaldte..."Is anyone home!!!" ingen svarede. Det så ikke ud til at indbryderen havde taget noget, men Viddi tog op en mappe der lå på stol og jeg sagde "Er du gal.....Du må ikke røre ved noget!!" Jeg vidste nemli at hvis vores fingeraftryk var over hele lejligheden, ville vi blive MISTÆNKELIG!! men, anyway, fandt tlf nr hos gamle konens datter og ringede til hende. Hun vidste helt sikkert at det måtte have været hendes bror (gamle konens søn) en narkomand, alkoholikker og håbeløst menneske. Han havde nemli været at grille sin mor de sidste dage. Politiet kom, tog raport, mit navn og cpr. nr. Gamle konens datter kom også og fik mand til at reparere døren, så den kunne lukkes. Og nu har vi besluttet at have udedøren løst hele tiden i lejlighed 305, efter jeg opdagede at i sidste uge, havde jeg et venligt chat (on my behalf) med broren da vi følgtes ad op i elevetoren. Chatten indeholt bl.andet noget om kaffeinvitation!! Ja jeg må holde op med at være så venlig, glad og må holde op med at lave sjov med fremmede mennesker!!!
Ja, Livet er ikke altid som man forventer når man bor i Sodoma, Sóltúni.

24.2.05
Svaka sætur gaur setti nýjan rafgeymi í drusluna í gær. Ekki var það nú gefins....eða jú..það sagði hann. Rafgeymirinn kostaði aðeins rúmlega 9000 kr en ísetning frí!! Hvaða fífl heldur fólk að ég sé?? Ég bara spyr. Vil nú frekar meina að rafgeymir með ísetningu kosti rúmlega þessi þúsund. En allavega þrátt fyrir það, þá var gaurinn flottur, næs og þjónusta tipp topp. Og ekki má gleyma að ég fékk drekkanlegt kaffi á þessu verkstæði, sem er nú meira en hjá sumum. Já, bara þokkalegt hjá Bílanaust. Og druslan ALSÆL. Ég bið ekki um meira í dag!

Rigtig sej fyr sætte nyt batteri i min skrammelbil i går. Ikke var det gratis...eller ju..det sagde han. Batteriet kostede lidt over 900 dkr men ingeting for at sætte det i!! Hvad for en idiot tror mennesker at jeg er?? Jeg bare spørger. Vil nu tro at batteriet og tjenesten ved at sætte det i koster sammen de nogle hundred. Men alligevel var fyren flot og hyggelig og tjenesten super. Ja og ikke må glemme at jeg fik godt kaffe på dette værksted, der er mere end man for andre steder. Ja bare ikke så dårligt hos Bilanaust. Og skrammelbilen er GLAD. Jeg beder ikke om mere idag!

21.2.05

ég syng eins og Björk....I live by the ocean... 

Ójá...margir voru heitir í getrauninni. Ætla ekki að nudda salti í sárin....en sjávarsaltið get ég sópað af stéttinni hjá mér og borið inn í hafragrautspottinn. Ekki amarlegt það!! Ekki vantar mig saltið í grautinn. Tók eftir þessu um helgina að það var bara slatti af salti á stéttinni hér fyrir utan og fannst það náttúrulega stórmerkilegt. Svona er nú lífið skrítið, fullt af óvæntum uppákomum ;o) Hver veit hvað verður á stéttinni minni á morgun??
ETV er það getraun dagsins, hér gætu verið möguleikar.

a) 5 ára pjakkar að spyrja eftir Dofra

b) Namibíumaður sem afhendir mér fullt af peningum, af því ég "lánaði" honum nokkrar krónur
eftir að hann sendi mér tölvupóst

c) Kanilsykur í mjólkurgraut

d) Harrison Ford með stál-augnaráðið og þetta ómótstæðilega villibros

Er bara orðin dáldið spennt.....get örugglega ekki sofnað í kvöld. Hlakka til að kíkja út á morgun!


Ja....der var mange det var tæt på at gætte rigtigt og jeg skal ikke sætte salt i såren....men saltet fra havet kan jeg feje op foran døren og bære ind i havregrødsgryden. Ikke dårligt!! Så jeg mangler slet ikke salt i grøden!! Lagde mærke til det sidste weekend at der var en del af salt her udenfor og syntes det var meget mærkeligt. Men såddan er dog livet. Fuldt af overraskelse ;o) Hvem hved hvad bliver udenfor mine døre i morgen?
Måske er det dagens spørgsmål, hvad bliver udenfor i morgen??
Her er nogle mulighder jeg kommer i tanke om.

a) 5 år gamle møjunge at spørge efter Dofri

b) En mand fra Namibia der giver mig masser af penge, fordi jeg "lånte" ham et par kr efter han sendte e-mail til mig.
póst

c) Kanilsukker til risengrød

d) Harrison Ford med sin stål øjne og dette uimodståelig smile

Er bare blivet lidt spændt...kan sikkert ikke falde i sovn i aften. Glæder mig til at kikke udenfor i morgen!!

19.2.05

Getraun dagsins 


Getraun dagsins: Hvað er þetta?
Gefnir eru 3 möguleikar. Sá sem fyrstur veit, vinnur nafnbótina "Ég þekki hvíta duftið!"
a) amfetamín á steypubekk
b) hveitisubb úr bakstri
c) salt í grautinn

Dagens spørgsmål: Hvad er dette?
I får 3 muligheder. Den som gætter først på det rigtige svar, bliver kaldet " Specialisten i det hvide stof"
a) amfetamin på betongbænk
b) Spillet mel fra bager
c) Salt i grøden

17.2.05
Hér er ótrúleg ládeiða. Bloggþreyta og tíðindalítið. Ég einstæð móðir um þessar mundir þar sem Viddi vinnur myrkrana á milli en hann á að skila verkefni á mánudaginn. Þá vonandi hægist um hjá honum. Druslan eitthvað að stríða mér og hefur verið með uppsteit og neitað að flytja okkur Dofra um bæjinn. Orkulítil og vitlaus. En ég vona nú að hún fari að taka sig á, ég nenni nefninlega ekki að þurfa alltaf að leggja henni í brekku svo ég geti rennt henni í gang, enda ekki margar brekkur hér við Sóltúnið.
Vi hjúin ætlum reyndar að lyfta okkur upp annað kvöld og fara á "Food and Fun festival" með Snorra og Sigrúnu. La Primavera er okkar staður annaðkvöld. Hlakka bara rúmlega til ;o)
Annars status Q....

Livet på lavpunkt. Sker ikke så meget spænende. Blogtræt og gider ingenting. Jeg er alenemor i de her dage, (men det er jo ikke noget nyt, sker altid engang i mellem) fordi Viddi skal aflevere et projekt på mandag og derfor ser vi han ikke så meget af hjemme. Er dog blivet vant til det. Min skrammel bil drille og har striket de sidste par dage og nægter at flytte mig og Dofri rundt om byen. Siger at den er ud af energi. Jeg håber den kommer til, jeg gider nemli ikke at finde bakker hele tiden til at parkere i så jeg kan glide afsted, enda ikke så mange bakker her ved Soltunet.
Ellers skal jeg og Viddi ud at spise i morgen aften. Food and Fun festival er i byen over weekenden og skal vi sammen med Snorri og Sigrun på en rigtig god restaurant (La Primavera). Glæder mig rigtig til det ;o)
Ellers status Q...

14.2.05
Allt svo rólegt hjá mér, róleg helgi, bara svona "ditt og datt". Reyndar ekki alveg svona rólegt hjá honum Vidda, en hann er sívinnandi. Ég fæ mér bara lánuð börn um helgar til að hafa eitthvað að gera og dustaði rykið af saumavélinni minni, þessari elsku.
Saltkjöt og baunir í gærkvöldi og prump, prump í dag með fýlu, já eins gott að þetta er matur sem maður eldar ekki á hverjum degi. Þvílík mengun, spurning hvað þetta telur í "Kíótósamningnum"?? En allavega, Torfi og Eva komu í saltkjötið og svo var spilað Catan fram undir miðnættið. Ferlega huggulegt.
Á meðan var botlanginn fjarlægður úr Kötu systur fyrir norðan, já hún var orðinn þreytt á að vera ósofinn tvíburamamma, svo hún fékk sér botnlangakast og svæfingu. Verður eflaust endurnærð eftir þennan svefn!! En allir hressir sem betur fer.

Alt roligt hos mig, rolig weekend, hvor jeg lavede lidt af hvert. Ikke helt så roligt hos Viddi, men han arbejder meget. Jeg låner andre menneskers børn om weekenden til at have noget at se til og stuede lidt af min symaskin i weekenden.
Saltet lammekød og gule ærte suppe i aftes og prut, prut i dag med dårlig lugt, ligeså godt at man laver denne mad ikke hver dag. Forurening i høj grad, spørgsmål hvor meget det tæller i "Kiotoaftalen"?? Anyway, Torfi og Eva kom til middag i aftes og så spillede vi Catan til midnat. Meget hyggeligt.
Imens var Kata sys til operation men hun fik fjernet blindtarmen. Tror hun var blivet så træt af at være tvillingmor uden sovn, at hun blev syg, så hun fik at sove imens de opererede hende. Men bliver sikkert frisk efter dette!! Men nu er alle friske, heldigvis.

10.2.05
Helgin að koma, stutt vinnuvika hjá mér bara 3 dagar, jamm svona á þetta alltaf að vera. Helgarferðir til útlanda og stuttar vinnuvikur. Er það ekki bara málið?
Tíðindalítið í dag, bara steiktur fiskur og brotið saman MEGA mikið af þvotti. Helst það að frétta að druslan komst í gegnum skoðun í dag. Þá getur maður sporterað á Elöntrunni eitthvað áfram. Og ég og Dofri erum alveg himinsæl, enda er þetta druslan okkar.

Snart weekend, kort arbejdsuge hos mig, kun 3 dager, jamm såddan må det meget gerne være mere often. Weekendrejser til udlandet og korte arbejdsuger. Det er sikkert.
Skete ikke så meget i dag, steigte fisk til aftensmad og så lagde jeg sammen en MEGA stak af tøj. Måske nyhed at min skrammel-bil var til syn i dag og blev godkendt. Så nu kan jeg køre lortet lidt længere. Og jeg og Dofri er meget glad med det, enda er den vores skrammel.

8.2.05
Rólegt í blogginu, en þeim mun meira fjör í Odense. Já, ég bara skildi karlinn og krakkann eftir heima og fór í stelpuferð. Hitti alla gömlu vinina mína, Guðnýju, Sveinbjörn og strákana, Einar, Birgitte, Lone, Johan, Shanaid og Söru. Hittingarnir voru nokkuð margir og sumir tíðir. En það er nú bara gaman. Lánaði bílinn hjá Sveinbirni og gat þeyst um götur Ódenseborgar eins og greifynja með nýja demantshringinn sem hún Lone keypti fyrir mig niðri í Suður-Afríku. Var viðstödd festelavnshátið í Björnemosen þar sem kötturinn var sleginn úr tunnunni árla morguns af hinum ýmsu dýrategundum. Kíkti smávegis í búðir og Frank A klikkaði ekki. Nachos og Öl hjá Franka og slúður á skalanum 10!
Reyndar varð hittingurinn við hana Lone öllu öðruvísi en ætlað var, því litla stelpan hennar (Shanaid) var svo rosalega veik að hún var flutt í skyndi á Odense sygehus þar sem hún var sett í einangrun, þar sem þau eru nýkomin heim frá Suður-Afríku. Varð hún alveg MEGA veik og því dvaldi ég bara hjá þeim skötuhjúum á H4 børneafdeling þar sem þau vöktu daga og nætur yfir Shanaid. Sem betur fer var hún farinn að hressast í dag átti að fá að fara heim. En það skrítna er að enginn veit hvað er að henni. Læknarnir héldu að þetta væri malaria en þær prufur koma neikvæðar út. En það skiptir kannski ekki máli nú, fyrst hún er að hressast. Og að því loknu vil ég þakka þeim sem sendu góðar bænir upp til karlsins á efri hæðinni. Því þær klikka víst aldrei!!
En nú er fríið búið að sinni og maður verður að hætta að láta eins og óábyrgur unglingur. Desværre. Get bara ekki aðí gert, en ég fullorðnast vís aldrei.

Roligt i bloggen, men endnu mere ballade i Odense. Ja, forladte manden og barnet hjemme og tog på pigerejse. Mødte alle mine gode og gamle venner i Odense. Gudny, Sveinbjorn, og drengerne, Einar, Birgitte, Lone, Johan, Shanaid og Sara. Møderne var mange og nogle mere end en gang. Men det er kun sjovt. Lånte Sveinbjorns bil og kunne køre som drønning om gader Odenseborger med min nye demantsring Lone købte for mig ned i Sud- Afrika. Deltog i festelavnsfest i Bjørnemosen hvor katten blev slået ud af ???? tidligt om morgenen af forskellige dyre og figure. Kikkede lidt i butikker og Frank A fejlede ikke. Nachos og ØL hos Franka og top sludder.
Men mødet med Lone og familie blev lidt anderledes end forventet, fordi hendes lille pige (Shanaid) blev så rigtig syg at hun var kørt ud på Odense sygehus hvor hun var sæt i isolation, fordi de er lige kommet hjem fra Sud-Afríka. Blev hun rigtig MEGA syg og derfor var jeg ude på sygehuset sammen med dem på børneafdelingen hvor de vagtede deres datter nat og dag. Heldigvis er hun ved at blive rask igen og skulle få lov til at gå hjem i dag. Men det er meget underligt at lægerne ved ikke hvad var galt. De troede hun havde malarie men blodprøverne kom altid negativ ud. Men det er måske ligemeget nu, fordi hun er ved at blive rask igen. Jeg vil gerne takke dem der sendte gode tænker op til manden ovenpå. Fordi det fejler aldrig at han lytter!!!
r fríið búið að sinni og maður verður að hætta að láta eins og óábyrgur unglingur. Desværre. Get bara ekki aðí gert, en ég fullorðnast vís aldrei.

3.2.05

Góða helgi ;o) 

Nú er ég komin í helgarfrí..jibbbyyyy....af lengri gerðinni meira að segja. Ætla ég að bregða mér af bæ og þiggja kaffisopa í Odensebæ næstu daga..tja, eða et par öl!! Já, ekki slæmt það.
Er að pakka í gríð og erg!! Hvað er ergur?? Hvað er gríður?? Bjánalegt hugtak eða??
Allavega, góða helgi og skemmtið ykkur dável.

Tidligt weekend hos mig.....jibbbyyyy....og en lang weekend. Skal smutte hjemfra i morgen og drikke kaffen i Odenseby de næste dage, tja..eller måske et par øl!! Ikke så dårligt.
Pakker ned. Glæder mig til at se jer i weekenden. Og til dem jeg ikke ser, kan I have en rigtig god weekend.



1.2.05
Tíðindalítið hér niður við sjó.
Viddi er inní sjónvarpinu og ekkert sérstaklega glaður þar sem Man.U er að vinna Arsenal 4:2 í skrifðum orðum. Reyni ekki að ræða við hann þegar svona mikilvægt efni er í kassanum. Enda liggja umræðuefnin ekkert á mér sem mara í augnablikinu, nei bara alls ekki. Allt bara í rólegheitum og ég hlakka til að geta gripið fjarstýringuna þegar leikurinn er búinn. Etv. finnur maður einhvern löggukrimma á skjánum, hver veit??
En svona Vidda vegna segi ég: "Áfram Arsenal"!!

Sker ikke så meget.
Viddi er inde i fjernsynet og ikke særlig opmuntret fordi Man. U er at vinde kampen imod Arsenal 4:2 når dette her er skrivet. Gør ikke engang forsøg til at snakke med ham når så inportant emne er i kasser. Jeg har dog ikke så meget at snakke om i øjeblikket, nej bare slet ikke noget. Alt stille og roligt og ser frem til at gribe fjernbetjeningen og måske finde en krimiserie på kanal3 når kampen er forbi, hvem ved??

Men på Viddis vegne siger jeg: "Go Arsenal"!!


30.1.05
Helgin að baki, ekki þó hurðarbaki...ha.ha..(á nefinnsogi!!) Ljúf helgi svo ekki sé meira sagt. Viddi lét renna í baðið fyrir mig á laugardaginn, þegar var runnið af honum (aha..ég er svo fyndin!) og sagði mér að skola skítinn og koma mér í sæmileg föt, því við værum að fara út. Ég er hlýðin kona og geri eins og mér er sagt og á meðan lét hann Dofra hverfa. Dubbaði ég mig upp af sveitakonu sið og fórum við út að borða. Við Tjörnina var býsna huggulegur staður með afslappað andrúmsloft og geypilega góðan mat. Gleyptum við í okkur fimm gómsæta rétti og svo brunuðum við í Þjóðleikhúsið að sjá Þetta er allt að koma eftir Hallgrím Helga. Flott sýning og skemmtileg.
Svo eftir IKEA ferð og skipulags-sunnu-dag í Sóltúninu sem innihélt hilluuppsetningar, og almenn hússtörf settum við Dofri okkur niður fyrir framan kassann og spiluðum BINGO. Ekkert Bingó á okkar spjöldum, en verðlaun fékk ég samt, já ótrúlegt en satt, fimust var ég á símanum og tókst að krækja mér í nýjan GSM síma og tja..já síðast og ekki síst, örugglega ársbirgðir af Fast Slim, já, kaldhæðni örlaganna. Nú verður ekki umflúið, FAST SLIM í öll mál og hraðar en augu á festir munu kílóin flúka...eða..?????

Weekenden forbi. Hyggelig weekend, så man ikke siger mere. Viddi sætte vand i badet i lørdags og sagde til mig at nu skulle jeg bade og tage bedre tøj på, fordi vi var på vej ud. Jeg gør jo alt manden siger så jeg smuttede i badet imens han fik Dofri til at forsvinde. Tog jeg mit bedste tøj på og vi kørte ud på restaurant. En af de bedste restauranter i Reykjavik, Vid tjørnina er bare rigtig hyggelig sted med endnu bedre mad. Spiste vi fem forskellige rette og bagefter var vi i national teateret og så et islænskt skuespil. Rigtig flot og sjovt forestilling.
Efter IEKA besøg og planlægnings-søndag i Soltuni der indeholdt hylder opsætning og almennligt husarbejde satte jeg og Dofri os ned foran TV til at spille BINGO. Vi fikk ikke noget Bingo men præmier fik jeg dog for at være den hurtigste til at bruge tastaturet på telefonen (mange års erfaring *LOL*) og vandt jeg en nye mobil tlf og ja...så jeg ikke fortæller om års levering af Fast Slim, ja ironiskt, synes I ikke? Nu kan det ikke ungås længere, Hver måltid indeholder FAST SLIM og hurtigere end øjne kan se vil mine extra kiloe forsvinde...eller???

26.1.05

Svik og prettir eða?? 

Fékk email í dag sem og alla daga, nema hvað að þetta var frá henni Rikke vinkonu minni, eða svo hélt ég.
Þar er hún að kynna mig fyrir fyrirtæki sem heitir SMS.ac og býður uppá frítt sms. Hmm... þegar betur er að gáð, þá er þetta mail alls ekki sent frá póstfanginu hennar Rikke heldur frá einhverjum hjá sms.ac tel ég víst. En þeir nota hana sem cover og undirskriftin undir bréfið er Rikke Bittner.
Mér fannst þetta nú bara super, að geta sent Rikke sms gratis.... en ég ákvað að kíkja á netið og lesa mér aðeins til um sms.ac. Þar eru misjafnar sögur sagðar af þessu fína fyrirtæki, sem malar víst gull á vitleysingum eins og öllum hinum (ekki mér) sem skráðu sig hjá þessu fyrirtæki.
Er einhver sem hefur heyrt um þetta sniðuga fyrirtæki??

Fik email i dag, ligesom de fleste dage, uden at dette var fra min veninde Rikke, eller det troede jeg.
I emailen er hun at presentere et firma der hedder SMS.ac og tilbyder at sende gratis sms. Humm.. når jeg kikkede bedre på brevet så jeg at det slet ikke var sent fra Rikkes emailadresse, men fra nogen fremmede, sikkert hos sms.ac. Men de bruge hende som cover og underskriften er Rikke Bittner.
For et øjeblik syntes jeg at det var super at jeg kunne sende gratis sms over hele verden..men bestemte mig for at kikke nærmere på sagen og læse lidt på google om firmaet. Der kan man finde meget forskellige læsninger om firmaet, det tjener mange, mange penge af alle de andre dumme mennesker (ikke dog mig!) der har skrivet sig op hos dette firma.
Er der nogen derude der har hørt om SMS.ac før?

24.1.05
Ekkert varð af þorralbótsferð í Bárðardalinn þetta árið, en frúin bauð Vidda uppá nýtísku þorramat á bóndadagskvöldið (föstudagskvöld). Já, hugnast mér nú betur grillaður humar með hvítlauk, salati og glóðvolgu brauð en eistapar!!
En nú er ný vinnuvika hafin og hægt að nota orðið "Þorraþrælar" yfir okkur vinnandi manneskjurnar!!

Ikke kørte vi nordpå til festen dette året, men jeg lavede rigtig god mad til Viddi i fedagsaften. Ja jeg synes grillet hummer med hvidløj, salat og nybagt brød meget bedre end fårnosser!!

19.1.05
Tíðindalítið. Nema hvað helst að málgagn euromannsins kom póstinum í dag.
Hvern vantar loftpressu, klósettsetu og 4 lítra af gluggapússispreyji?? Ég bara spyr. Ætli ég skippi ekki Euourpris þessa vikuna.
Annars er Viddi lagstur til langs eins og danskurinn segir og ég farinn að hljóma eins og Rod Steward þegar hann opnar munninn, eða Bonnie Taylor. Já aumingjafjölskyldan er í essinu sínu, stútfull af kvefi, flensu og hori. Bíður einhver betur?? Þorrablótsstemmingin fer dvínandi þegar líður á vikuna og líkur á norðurferð minnka með hverjum deginum.
Það verður þá bara ekkert öðurvísi en þorrablótið verður haldið í Sóltúninu, þar sem Roddi gamli mun taka "Hvað er svo glatt sem góðra vina fundur!" og einu eistapari verður rennt niður...Hver veit?

Sker ikke så meget. Uden at avisen fra Europris kom ind af døren i dag. Hvem mangler "aircompressor", toiletlåg og 4 litre af vinduespray? Jeg bare spørger. Tror jeg skipper Europris denne uge.
Ellers er Viddi langt på langs af influense og jeg er begyndt at lyde som Rod Steward når han åbner munden, eller Bonnie Taylor. Ja skrammelfamilien er på højpunkt, fuld af forkølelse, influense og dårlighed. Ved nogen om noget bedre? Feststemmningen (planede at feste næste weekend og spise fårnosser...) bliver mindre hver dag og sjansen for at rejse nordpå i weekenden er ikke så stor nu.
Men så bliver det ikke noget andenledes end at fårnosserne bliver spist i Soltuni og familine fester hjemme. Gamle Roddi tager en gammel islænsk sang imens han tygger på nosserne...Hvem ved?



16.1.05
Mamma sagði alltaf að pabbi færi líkamlega að versla en hugurinn væri fjarstaddur, þar sem hann strunsar eftir hillurekkunum, og svona af gömlum vana teigir sig eftir mysingnum, ostinum eða mjólkinni, eða því sem hann var "vanur" að kaupa. Óttast að ég kippi í kynið, eftir verslunarferðina mína í gær. Ég reyndar tek ferðirnar ekki á sama spretti og pabbi gamli heldur rölti svona meira eins og svefngengill um búðina. Hugurinn víðsfjarri verkefninu og ég tíni af handahófi úr hillunum það sem mér þykir áhugavert og niður í innkaupavagninn.....ja...innkaupavagninn.... málið er að vörurnar rata ekki alltaf í MINN innkaupavagn heldur er það líka handahófskennt hvert þær rata!!
Átti þetta samtal við ókunnuga konu í búðinni í gær:

Konan: "Vantar þig vagn?"
Ég: HA ég, nei..nei.. ég er með einn hérna..(skimaði í kring um mig og var að sjálfsögðu búin að gleyma hvar ég skildi hann eftir.)
Konan: "Nei..ég er bara komin með fullt af hlutum í vagninn minn sem ég er ALLS ekki að kaupa!"

Ég leit ofan í körfuna hjá konunni.....var dálítið skömmustuleg þegar ég sá að ég átti næstum helminginn af því sem þar var..... Byrjaði í fáti að tína upp vörurnar MÍNAR úr HENNAR vagni, afsakaði mig í bak og fyrir og hóf leitina að mínum....

Mor sagde altid at når far er ude at handle så er kun kroppen der, men sindet et andet sted. Hvor han løber efter gangen og af gammel vane trækker sig efter osten, brødet eller mælken, eller hvad han var "vant" til at købe. Frygter at jeg ligner ham lidt, efter mine sidste besøg i butikken i går. Jeg tager nu mine indkøbsrejser ikke så hurtigt som far gjørde, men går langsomt mellem hyllerne som jeg går i min sovn. Tankerne langt væk fra projektet og jeg plukker random ud af hyllerne det jeg mangler og ned i indkøbsvågnen.... ja indkøbsvågnen....problemet er at mine varer finder ikke altid vejen i MIN inkøbsvågn det er også lidt random hvor de ender!! Havde dette samtale ved en fremmed kone i butiken i går:

Konen: Mangler du vågn?
Jeg: Ha, jeg, nej, nej, jeg har en her...(kikkede omkring mig men havde selvfølgelig glemt hvor den var)
Konen: "Nej..jeg har bare mange ting i min vågn jeg SLET ikke vil købe"!

Jeg kikkede i konens indkøbsvågn... blev lidt rød i andsigtet da jeg så at næsten halvdelen af varene i vågnen var mine varer...... Begyndte i panik at tage MINE varer ud af HENDES vågn, unskyldede mig frem og tilbage og begyndte at søge for min vågn...

13.1.05

jammí...jammí.....ég verð nú bara svöng þegar ég sé þessa mynd! En verði ykkur nú bara að góðu Hjörleifur og Viðar! Fannst þetta bara svo fyndin mynd sem hún Kata frænka á móti Kötu sys sendi okkur um daginn.
Spurning dagsins er akkurat sú:
Er Viddi að jarma??

Jammí..jammí...bliver sulten ved at se på dette billede! Men velbekom Hjørleifur og Vidar! Syntes dette billede så morsomt men min cousin Kata sendte den til os i forlede uge.
Dagens spørgsmål er:
Er Viddi at sige MMMEEEEEEE...???

10.1.05

fyrir félitla... 

Frábær frétt fyrir félitla. Löggan tók ryksugumanninn ógurlega fastann um helgina, þar sem hann var að ryksuga smápeninga upp úr stöðumælum....HA...HA.... en þessi hefur eflaust lifað eftir máltækinu "margt smátt gerir eitt stórt". Ég ætla að muna eftir þessu ráði þegar fer að harðna í ári. Þá mæti ég með handryksuguna á laugarveginn í skjóli næturs..... Ekki segja neinum...

Rigtig godt råd for de fattige. Politiet anholdte den farlige støvsugemand i weekenden, hvor han stod med støvsugen og sugede småpenge op af parkometrene...HA..HA....Han liver åbenbart efter mottoet "mange små ting gør en stor". Jeg vil huske dette råd når jeg bliver kort af penge. Så møder jeg op ned i centrumen midt om natten med håndstøvsugen....Ikke fortæl nogen...

9.1.05

Ágætur dagur að kveldi kominn. Laugardagurinn í gær all rólegur (hausverkur og vitleysa) og Spiderman2 fékk að rúlla í DVD spilaranum Dofra til mikillar skemmtunar svona til að byrja með allaveganna. En í dag, bundum við planka á fætur okkar og skelltum okkur í Bláfjöll. Reyndar gleymdist myndavélin heima, en það var nú gott, því annars hefði ég smellt af einni, þegar Viddi skíðafantur skíðaði niður manngrey í skíðalyftunni!! Bara býsna fyndið á að horfa! En allavega, fann hérna fína mynd úr barnabrekku í Bláfjöllum en lýsir hún mjög góða veðrinu sem var í dag. Svo er það bara heitur grjónagrautur, egg og brauð í kvöldmatinn. Jammí..jammí...

En rigtig god dag forbi. Lørdagen i går var stille og rolig (hovedpine og dummhed), Spiderman2 fik at rulle i DVD spilleren og Dofri var meget glad for det, såddan i begyndelsen i hvertfald. Men i dag, sætte vi træplanke på fødderne og kørte ud til Blafjøll. Desværre glemte vi kameran hjemme, og det var heldigt for Viddi, fordi ellers havde jeg taget et når Viddi ski"bully" skiede en unskyldig mand ned i skiliften. Blev lidt sjovt at se på!! Men alligevel, fandt jeg et rigtig fint billede fra Blafjøll og vejret i dag var ikke så forskelligt fra dette billede. Så er det bare varm risengrød, egg og brød i aftensmad. Jammí..jammí...

6.1.05
jamm...fer að styttast í helgina og er það vel. Eina leiðinlega er, að þá skal jólaskraut niður í kassa og lífið verður enn hversdagslegra fyrir vikið. En til að krydda tilveruna, boðaði Rannveig til "Skyndi" saumó í gærkvöldi heima hjá Sigrúnu vinkonu okkar. Ekki var um annað að gera en að mæta, þar sem vitað er að þegar boðað er til "Skyndi" saumó liggur lífið við. Kallaði Vidda heim úr vinnunni og dreif mig útá land, allaleið í Grafarvoginn í gærkvöldi, þar sem jólaslúðrið var í algleymingi og skyndihjálp í selskap var í hávegum höfð!

Jamm...snart weekend og det er godt. Den ene kedelige ting er at den skal alt julepyntet ned i kasse og livet bliver grå hverdag igen. Men til at sætte lidt krydderi på tilværelsen, ringede Rannveig veninde ud "Akut" pigeaften i aftes hjemme hos Sigrun (vores fælles veninde). Man kan ikke undgå en "Akut" pigeaften fordi så er det spørgsmål om liv eller døde. Kaldede Viddi hjem fra arbejde og skyndte mig ud på landet, hele vejen i Grafarvogur (område i udkanten af Reykjavik, max 10 min at køre!), hvor vi pigerne sad sammen og julesludderet fløj over stuen og "først aid" i selskab var øvet!

5.1.05

Miðvikudagsmorgun 5.janúar. Já, svona sofa drengirnir vært, þegar ég er kominn framúr. En svona í framhjáhlaupi, það virðist nú ekki vera mikið pláss fyrir þriðju manneskjuna í rúminu!!...ekki furða þó ég sé alltaf kominn á fætur á undan hinum. Smellti mynd af þeim í draumaheimi. Já, ég veit ég er óþokki. En óska öllum góðs dags og mikilla afkasta í vinnu!

Ondsdag...eller bare Onsdag den 5.januar. Ja, drengerne sover godt, når jeg er ude af sengen. Men det ser ud til at jeg har alligevel ikke så stor plads der i forvejen. Ingen overraskelse over at jeg er altid ud af sengen meget før end de gør!! Tog et billede af dem i drømmelandet. Ja, jeg er uartig. Ønsker jer alle en rigtig god dag og god arbejdslyst.

3.1.05

Gleðilegt ár 2005 


Gleðilegt nýtt ár!
Áttum voða góð jól og áramót fyrir norðan, ég þurfti reyndar að bregða mér í borgina á milli áta, svona til að sýna andlitið í vinnunni en annars var nú mest dvalið á norðurslóðum, enda lítið ferðaveður svona annanhvern dag allavega. Kata og Jói létu skíra Tinnu og Karenu á gamlársdag og tókst það með miklum ágætum.
En það sem mér tókst að afreka svona síðustu daga árins er vonandi ekki forsmekkurinn á því sem koma skal. En hér skal tæpt á því helsta.
1. Ég rétt náði að sleppa því að gubba yfir samferðamenn mína í Fokking 50 á leið til Akureyrar daginn fyrir gamlársdag!!
2. Ég keyrði af stað á Terrible með bensínslönguna í tankinum!!
3. Ég flautaði með eyrunum í flugvélinni þegar loftþrýstingurinn varð óbærilegur og hausinn varð að hleypa lofti út eða inn(er ekki alveg viss), en ég heyrði flautið, og konan við hliðina á mér leit skringilega á mig!
4. Ætlaði að reima skóna á fæturnar, þegar bakið krassaði og nú er ég alskökk heima við og vona bara að fólk haldi ekki að ég sé svona skökk af því að reykja gras!!

En einhversstaðar segir að fall sé fararheill og ég trúi því.

Godt nyt år!
Vi havde rigtig god jul og nytarsaften nordpå, selvom jeg måtte lige smutte til hovedstedet mellem spisning til at vise mit andsigt på arbejdspladsen. Vi var stille og rolig fordi det ikke var så godt vejr til at rejse meget. Kata og Joi fik døbt Tinnaog Karen på nytårsaftendag og det lykkedes godt.
Det jeg fik gjørt de sidste dage før nytår, er forhåbentlig ikke forsmagen på hvad kommer. Men her får I at vide den lille del af det.

1. Jeg lige fik ungået at kaste op over mine rejsekammerate i flymaskinen (Fucking 50) på vej til Akureyri dagen før nytårsaftendag!!
2. Jeg kørte Terrible af sted med bensinslangen i tanken!!
3. Jeg fløjtede med ørene i flymaskinen, da lufttrykket blev for højt og hovedet var nød til at sætte lidt loft ind eller ud ( er ikke helt sikker), men jeg kunne høre fløjtet og kvinden ved siden af mig kikkede mærkelig på mig!!
4. Skulle til at binde mine sko, da ryggen "crach"ede og nu er jeg helt skævhet og håber bare at mennesker ikke tror at jeg er såddan pga hash rygning!!

Men ikke er noget så dårligt at det ikke er viser på noget godt!!(kan man sige det??)





23.12.04

Hin hinsta kveðja...svona á árinu allavegana 

Nú er þetta að detta inn. Skötulyktin í 104 Reykjavík laumast inn um gluggana hér í Glæsibæ og minnir mann þægilega á þorláksmessudag heima hjá pabba og mömmu þegar maður var lítill.
Leiðindarfnykur sem segir manni að nú séu góðir tímar í vændum. Er að klára síðustu verkefnin á kontornum áður en fjölskyldan stekkur upp í Terrible og brunar af stað norður.
Óskum ykkur öllum gleðilegra jóla þarna úti.
Stórt Jólaknússsssss......


Nu er det ved at komme. Fiskelugten (lugt af gammel, meget gammel fisk, der er tradition at spise dagen før jul) kommer ind af vinduet her i Glaesibae (hvor jeg arb) og mindrer fra dagen før jul hjemme hos mor og far kommer til livs. Dårlig lugt, men den fortæller man at dejlige dager er foran. Sidder på kontoret og gør de sidste ting færdig før familien hopper op i Terrible og kører nordpå.
Ønsker jer alle, rigtig god jul der ude.
Stort juleknussssssss.......

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com